Með Crestron stjórnkerfi er mögulegt að stýra flestum þeim raftækjum og búnaði sem tengist rafmagni. Með stjórnkerfinu er flókin tækni nútímans gerð aðgengileg fyrir notendur sem geta aðlagað kerfið að eigin þörfum. Hægt er að framkvæma margar skipanir samtímis með einni snertingu á snertiskjá. Meðal þess búnaðar sem algengt er að stýra með slíkum hætti er hljóð- og myndbúnaður, lýsing, hiti, öryggiskerfi, gluggar og gluggatjöld og fleira.