Bose og Artcoustic eru fremstir hvor á sínu sviði í heiminum. Bose hefur mikla sérstöðu hvað varðar hönnun, hljómgæði og viðmót. Þróunarvinnan er einstök en ávallt er reynt að finna leiðir til þess að framkvæmda hluti sem áður voru taldir ógerlegir. Þar eru sameinuð framúrskarandi hljómgæði, stílhrein hönnun og notendavænt viðmót. Útlit Bose er ávallt klassískt og gefur heimilum fágað útlit svo árum skiptir. Artcoustic hefur tekist að framleiða einstaklega þunna og fallega hátalara sem veita hverju heimili ákveðið sérkenni. Til dæmis er mögulegt að fela þá undir málverkum eða mynd og skapa þannig sinn eigin stíl.